Hvað er innifalið í verðinu?

Eingreiðsla – þú greiðir aðeins einu sinni og hefur ótakmarkaðan aðgang að öllu námsefni í sex mánuði.

Aðgangur að kennara – þú getur leitað til Radeks B. Dudziak með spurningar og fengið aðstoð meðan á náminu stendur.

Yfir 6 klukkustunda fræðsla – 4 fræðslukaflar með kennslustundum, myndböndum og lesefni.

Talsett lesefni – þú getur bæði lesið og hlustað á námsefnið, eftir því hvað hentar þér best.

Próf og lokapróf til að prófa þekkingu þína.

Nýtt fræðsluefni í hverjum mánuði, sem er innifalið í aðganginum.

Skírteini að loknu námi þegar þú hefur lokið námskeiðinu og staðist lokaprófið.

Lærðu á þínum hraða, hvenær sem þér hentar, og horfðu aftur á myndböndin eins oft og þú vilt.

MATOR – matvælaöryggi á mannamáli. Hagnýt og aðgengileg fræðsla sem þú getur nýtt þér í starfi og daglegu lífi.

Rafræn fræðsla í fjórum fræðsluköflum

1. Hitastigseftirlit
7 undirkaflar með fræðslu og hagnýtum upplýsingum.

2. Vinnufatnaður og persónulegt hreinlæti
7 undirkaflar með fræðslu og hagnýtum upplýsingum.

3. Krossmengun
7 undirkaflar með fræðslu og hagnýtum upplýsingum.

4. Ísskápar og frystar
7 undirkaflar með fræðslu og hagnýtum upplýsingum.

Samtals: 28 undirkaflar í fjórum fræðsluköflum.

Nýtt fræðsluefni í hverjum mánuði

30. október 2026 – Ofnæmisvaldar í matvælum

30. nóvember 2026 – Örverufræði matvæla

30. desember 2026 – Efna- og eðlisfræðilegar hættur í matvælum

30. janúar 2027 – Skipulag og búnaður eldhúss

28. febrúar 2027 – Með augum heilbrigðiseftirlitsins

30. mars 2027 – Matvælaöryggismenning

Fleiri fræðslukaflar bætast við síðar

Persónuleg aðstoð og beint samband
Allir þátttakendur með virkan aðgang að MATOR.is geta haft samband við Radek hvenær sem er ef spurningar vakna á meðan á náminu stendur.
Þú getur hringt í síma 669 3961 eða sent skilaboð í Messenger á Facebook-síðuna Matvælaöryggi á mannamáli.
Scroll to Top