Radek B. Dudziak
Heilbrigðisfulltrúi & M.Sc. í auðlindafræði
Um MATOR
Ég heiti Radek B. Dudziak og starfa sem heilbrigðisfulltrúi með sérhæfingu á sviði matvælaeftirlits og matvælaöryggis.
Í starfi mínu vinn ég daglega með fyrirtækjum í matvælaiðnaði,
veitingastöðum, mötuneytum og öðrum rekstraraðilum við að stuðla að öruggri meðhöndlun matvæla, góðum starfsháttum og auknum gæðum.
Matvælaöryggi á mannamáli hefur vakið töluverða athygli og ég hef meðal annars verið í viðtölum á Rás2 og Vísi og birst í umfjöllun hjá Mannlífi, Kaffinu og Akureyri.net. Þar hefur meðal annars verið fjallað um faglegan bakgrunn minn, rannsóknir og mikilvægi þess að gera vísindi og góðar matvælaöryggisvenjur aðgengileg öllum.
VÍSINDALEGUR GRUNNVÖLLUR
Menntun og rannsóknir
Ég er með B.Sc. gráðu í heilbrigðislíftækni og M.Sc. gráðu í auðlindafræði frá Háskólanum á Akureyri og stunda nú M.Sc. nám í stjórnun við sama háskóla. Menntun mín sameinar þekkingu á örverufræði, líftækni, matvælaöryggi og vísindalegum
rannsóknaraðferðum.
Meistararannsókn mín beindist að örverufræði, oxunarálagi og samspili baktería við plast. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í hinu alþjóðlega ritrýnda vísindatímariti Frontiers in Microbiology.
- RITRÝNT VÍSINDATÍMARIT
„Örverufræði, oxunarálag og örverufilmur á plasti“
Frontiers in Microbiology
RANNSÓKNARHEIMILD (DOI):
doi.org/10.3389/fmicb.2026.1802173
VERKLEGT & AKADEMÍSKT
Reynsla og kennsla
Rannsóknastofa og gæðastaðlar
- ISO samræmi
Kennsla við Háskólann á Akureyri
Auk rannsókna hef ég kennt líffræðinemum við Háskólann á
Akureyri verklega rannsóknastofuvinnu og rannsóknaraðferðir. Sú
reynsla hefur kennt mér að flókin vísindi verða að vera sett fram á skýra.
- Verkleg kennsla
HUGSJÓNIN BAK VIÐ MATOR
Af hverju MATOR
Með MATOR sameina ég reynslu mína úr matvælaeftirliti, vísindarannsóknum, rannsóknastofum og kennslu. Markmið mitt er að gera matvælaöryggi aðgengilegt öllum með fræðslu sem byggir á traustum vísindalegum grunni en er um leið hagnýt, skýr og auðveld í framkvæmd.
Ég trúi því að besta leiðin til að bæta matvælaöryggi sé ekki með flóknu orðalagi heldur með því að útskýra af hverju reglurnar skipta máli og hvernig þær nýtist í raunverulegu starfi.
