FRÆÐSLA FYRIR FYRIRTÆKI

Fáðu hagnýta fræðslu í matvælaöryggi

á þínum vinnustað.

Viltu efla þekkingu starfsfólksins á matvælaöryggi? Ég kem á staðinn og veiti hagnýta fræðslu á íslensku, ensku og pólsku, aðlagaða að daglegu starfi og þörfum fyrirtækisins.

MATOR býður upp á hagnýta fræðslu í matvælaöryggi fyrir starfsfólk fyrirtækja. Kennslan tekur mið af raunverulegum aðstæðum í eldhúsinu. Markmiðið er að efla þekkingu starfsfólks og stuðla að öruggri meðhöndlun matvæla í daglegu starfi.

MATVÆLAÖRYGGISÚTTEKT

Óháð fagleg úttekt áður en

áskoranir verða að vandamálum.

Ertu að opna nýjan veitingastað, byggja eða endurnýja atvinnueldhús, eða vilt einfaldlega vera viss um að allt sé í lagi áður en opinbert eftirlit fer fram?

MATOR veitir hagnýta og óháða ráðgjöf byggða á raunverulegri reynslu af matvælaeftirliti og rekstri. Við aðstoðum fyrirtæki við að tryggja að hönnun,
búnaður og verklag standist allar gildandi kröfur.

ÞJÓNUSTUSVIÐ

Fræðsla og ráðgjöf í matvælaöryggi

Hagnýt fræðsla og ráðgjöf í matvælaöryggi fyrir starfsfólk og fyrirtæki, með áherslu á örugga meðhöndlun matvæla og góðar starfsvenjur í daglegum rekstri.

1. Fræðsla í matvælaöryggi

Hagnýt kennsla fyrir starfsfólk í eldhúsum, mötuneytum og veitingastöðum. Fræðslan er í boði á íslensku, ensku og pólsku.

3. Ráðgjöf um hönnun og aðstöðu

Ráðgjöf um skipulag atvinnueldhúsa, búnað og vinnuaðstöðu með áherslu á hreinlæti og örugga meðhöndlun matvæla.

2. HACCP og góðar starfsvenjur

Fræðsla um HACCP, innra eftirlit, hitastýringar, hreinlæti og varnir gegn krossmengun. Áhersla á að starfsfólk skilji hvernig góðar starfsvenjur nýtast í daglegu starfi.

4. Innra eftirlit og verklag

Yfirferð á verklagsreglum og innra eftirliti þannig að skjöl og raunveruleg vinnubrögð tali saman.

5. Mat á aðstöðu, búnaði og vinnuferlum

Hvort sem þörfin snýr að fræðslu eða ráðgjöf aðstoðar MATOR fyrirtæki við að finna tækifæri til úrbóta og efla matvælaöryggi í daglegum rekstri.

FYRIRBYGGJANDI GÆÐASTJÓRNUN

Við hjálpum þér að efla matvælaöryggi.

Markmiðið er ekki að finna galla heldur að hjálpa fyrirtækinu að uppfylla kröfur, auka öryggi og
spara tíma og kostnað með því að greina möguleg úrbótatækifæri áður en þau verða að athugasemdum eða vandamálum.

SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FRÁ MATOR

Ráðgjöf og fræðsla í matvælaöryggi

Heildstæð þjónusta sem tryggir fullt samræmi við opinbera staðla.

MATOR Ráðgjöf

Fagleg ráðgjöf, forúttektir, teikningayfirferð og uppbygging innra eftirlitskerfa fyrir allar gerðir matvælafyrirtækja.

MATOR Fræðsla

Vottuð námskeið, rafræn próf og sérsniðin fyrirtækjaþjálfun starfsfólks á íslensku, ensku og pólsku.
Scroll to Top